Nei blessaður.
Könnun
Vinnandi maður?
Já!
39 atkvæði

nei!
37 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 76
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 júní
31.03.2008 22:51:13 / Robert

Brjóta ísa

Jú vitið þið eða haldið þið að ég sé ekki orðinn leiður á því að hafa ekkert að lesa á netinu. Og ég var svona að leggja saman tvo og tvo og sumsé. Ef Við byrjum með allt á fullt= aðrir fá flugu í hausinn.“mig langar að vera aallveg eins og þeir, kúl og nettir.“ Með öðrum orðum : Nú verður tekið á því, eða allavega sá ég það í bollanum. 

Og jú ef þið viljið vera með í að gera heiminn betri, endilega vippið ykkur í lítil fuglagerfi og hvíslið að okkur eins og nokkur slúdder.  Landinn vill slúður allveg eins og barnaperrar vilja msn sem enda á _babe.

Svo ég gleymi nú ekki. Rétt eins og Rambó drepur kúl. Þá munum við að minnsta kosti reyna að setja kúl myndir inná. En þar sem við erum vinnandi menn þá bara kemur það í ljós.

>

En hérna ég vona bara að þið skjótið af ykkur hugsunnum og geislið af vitund og í guðs lifandi bænum, reynið að minnsta kosti að vanda skrift og frágang. Og ef einhvur með sál og styrk. Og hefur þann kjark að yrkja til okkar,  mundu stuðla og höfuðstafi. En annað var ekki í fréttum að sinni verið bless og passið ykkur á lausum hlutum.

>

Róbert Örn+ Ástarstrákarnir.


Við óskum þrátt fyrir það Gauta til hamingju með frumburðinn. En guttinn heitir Snjóber.



» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 17:15:02 / loverboys-

Lol Gaur en ekki hvað.

Blogga blogga blogga blogga. Mikið má enginn vera að þessu og er það nema furða þegar landið er í bullandi banka vandræðum!  En bankavandræði, hvað er nú það!. Hverjum hefði dottið það til hugar að gæjar sem eru búnir að læra að vera ekki í bankavandræðum, með 15 milljónir í mánaðarlaun séu að fara að koma sér í bankavandræði. Hef ég nú séð það margt en þetta sko... algjörlega fyrir neðan allar hellur. Og talandi um hellur, þá er ég með hellur.  En nóg um það.

Lítið að segja, lítið að segja.  Nema það að ég er búinn að finna lækningu við hausverk, og úr því ég er örlátur í eðli mínu og bara góður gaur þá gjöriði svo vel:

 Teipa öklann órakaðann klukkan hálf níu á sunnudags morgni( þá helst fyrir fótboltaleik) og stelpur.. þið þurfið að safna hárum á öklann fyrst.  Fólk verður að láta sig hafa það bara.  Já svo er sko málið að fara í sturtu og dunda sér við að taka það af, semsagt teipið. 
Niðurstaða:  Þú verður svo einbeittur og æstur að þú gleymir að Afríka sé til og í þokkabót er sárskaukinn á við 15 bolta í punginn.  Og já stelpur þið bara fáið ykkur eitt stykki svoleiðis ef þið viljið vera memm . SEMSAGT  þið gleymið öllu sem heitir hausverkur á meðan. Og nú er ég að vona að Harward eða Hogwards sé að leita af efnilegum vísindamönnum á íslenskum blogg síðum... Ég held allavega í vonina.

Og svo en ekki hvað.. var ég að spá. Ég viðurkenni semsagt fúslega að hafa verið á Samfés og ekkert mál með það, NEMA HVAÐ. Þetta tók mikið á augntaugarnar og úr því ég hugsa voða mikið þá komst ég ekki hjá því að hugsa.. Að hverju er ísland að verða? Allar stelpur sko niður í 8 bekk! Voru í ekki nema fimm þumlunga pilsi og eiginlega bara nánast naktar.  Og og og Allar kúkabrúnar  með brjóstin svona 30% ofaní Bolnum. Þetta er bara ekkert svo sniðugt og við erum að tala um að hugmyndaflugið er ekki langt yfir núllinu. Og svo rak ég augun í Hlýrabolsgengi semsagt nokkrir strákar drullu „köttaðir“  með sko kíttað hár og í Levise buxum sem hörfðu það að hobbíi að labba svona í gegnum hópinn og sýna hversu máttmikið krewið var. Og við erum að tala um að það kom svona annaðslagið högg í öxlina, þá var þetta svona: hey passaðu þig fuunheitur gaur með playboy sylgju komin thruuuu.  Þá vissi ég ekki hvort ég átti að hlægja eða gráta. En ég hafði ekki mikinn tíma í að ákveða mig því þá týndi maður fólkinu sem maður var með. Drullu erfitt Samfés semsagt engu að síður braut Magni fóta(þá ekki í bókstaflegri merkingu) . Takk fyrir það

En ég held að málið sé núna bara að fá sér kríu að hætti íslensks unglings og fara yfir önghljóð og sagnfyllingar eftir hana, eða ekki.  Líklegast verð ég bara vakandi og drita á refresh takkan með öran hjartslátt og blóta goðin um comment. Sem eru sjaldséð á þessari undurrauðu síðu.

>

Anywaaays

Aqua og Grasías. RóbertÖrn


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 18:40:09 / Sigurbergur

Jáá, deyja ?

Jáá, dagarnir eru fljótir að líða og það er afmælisdagur í dag! Magnús Þór Magnússon á afmæli í dag. til hamingju með það kall.
Síðan að deyja ? jáá það held ég ásamt fleira fólki sem veltir þessari spurningu fyrir sér, Hvað á til bragðs að taka ? hmm, vesen? heldur betur, heldur betur. Slúdderinn steindauður eins og vanalega í þessum bæ, það er meira slúður í gangi á Borðeyri skal ég segja ykkur, kynntist "yndælis" konu frá Borðeyri á flugvellinum þegar ég fór út, alveg stórskrytinn leyf mér að segja! Hún var klædd í loputetur frá toppi til táar :) Var á leið til Boston, veit ekki hvernig hún fékk þann pening þar sem hún vann sem símakona í einverri verslun eða einhverjum banka þarna á Borðeyri. Fluginu hennar var nú aflýst eins og mínu flugi, munurinn var sá að hún þurfti að gista á flughótelinu en ég flaug bara heim og svaf í minu rúmi.. Flaug svo til Manchester um morguninn og svo lenti maður og fór svo á Wolves - Stoke.. svo hvíldi maður lúin bein um kvöldið
Það var nú ekki mikið að gerast í mínu daglega lífi þessa 10 daga sem ég var úti, bara keppa og æfingar,versla og svona.. lítill tími til heimalærdóms en það er bara fínt, fór út á "frábærum" tíma! prófvika og svona fínerý sem þýðir að ég þarf að taka 6 próf í skólanum á morgun sem er freekar mikið að minni hálfu :) Þessi dagar voru frekar fljótir að líða að mér fannst, veit ekki um ykkur en allavega fannst mér það.. En nóg með það, síðan er allavega að deyja! Brynjar má skella einu lúmski bloggi hérna á næstunni, hver verður glaður þá ? maður spyr sig
Ætlaði nú ekkert að blogga en það var eitthvað sem kitlaði fingurgómana þannig að ég ætla ekkert að vera tefja ykkur meira með þessu blaðri,

Veriði blessuð!
-Sigurbergur


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 19:52:35 / Robert

Vont fyrst.

Ég á ekki til orð. Eða kanski nokkur um veðrið

Asnalegt
Ömurlegt
Fáránlegt
Blautt
Þreytandi

Eða þið skiljið.

Að Vísu
gefst núna tími til að flokka allar save as myndirnar og hugsa um gömlu tímana.

Því að ef ég fer að hugsa, þá átti ég mjög svo spennandi „Æsku.“ Ekki það að ég sé eitthvað eld gamall, en ég hef bardúsað sitthvað um ævina. Og þá er spurningin að ljóstra nokkrum leyndarmálum.
En þannig er mál með vexti að ég var ekkert að flækja neitt hlutina þegar ég var já yngri en ég er. váá.

En sko ég kunni eitt símanúmer og það var já hjá Helga Má og svo leið ekki sá dagur þegar ég sparkaði ekki í bolta eða var í legó. En inná milli, þó svo ég hafi verið þetta blessaða englabarn þá sko verð ég að segja frá mínu klikkaðasta! Þússt Adrenalín flæðið allveg í botni .

Einn daginn semsagt var eitthvað vont í lofti og ég og helgi vorum bara að lifa lífinu á hólnum hjá Gerðu þegar svona það greip eitthvað um mig. Ég sá semsagt sko appelsín flösku og kók flösku hjá svona bakhurðinni OG VITI MENN. Ég opnaði eina og helgi eina og við veltum þeim og hlupum í burtu. OG það hefur ekki liðið sá dagur! Sem ég hugsa um þetta og sé eftir, þó svo líklegast Gerða og Bragi hafi ekki grátið þessar tvær flöskur. En Bragi ef þú ert að lesa, þá áttu inni hjá mér 2 lítra af gosi.

 

Svo ætli maður hafi ekki einusinni tekið lóu egg. Og júú í hvert skipti sem ég sé lóu, þá fæ ég sting í hjartað.

Og ekki nóg með það heldur sleit ég einusinni svona línu á snúruni hjá Hönnu hérna hliðiná. Ekki hef ég labbað framhjá þeim snúrustaur síðan.

 

Ætli maður hafi svo ekki tekið götuna og kastað snjóboltum í rúður ellegar bíla. EN þaaað sko það má! Og ég sé engann veginn eftir því. Það er samt sko þegar maður er að hlaupa í burtu þið kannist við það strákar, það er svona bad boy fýlingur í gangi. Og það skal enginn neita því....

 

Þetta ætti samt að fá ykkur sem voruð að brjótast inn í æsku og svona drekka ilmvötn og þers háttar til að hugsa. Hvað þið eigið ekki séns í mig og mitt adrenalín.

En það er svona. Gott og gaman

Og tala nú ekki um kominn tími til! að deila þessu með einhverjum, hvað þá öllum heiminum.

 

En svona jáá ég vona að ég verði ekki barinn útaf þessu eða neitt svoleiðis og bara lifið heil.

 

-Róbert Örn


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 23:36:49 / Gauti

Ísland og EM

Ísland, Ísland, Ísland. Jæja nú er handboltinn kominn á fullt og fullyrði ég að meiri hluti Íslands fylgist væntanlega með því. Nú fyrir stuttu voru þeir að spila gegn Þýskalandi og jú?? Þeir töpuðu, tap einnig gegn frökkum og svíum og einn sigur sem var gegn Slóvenum. Svo kemur alltaf sú afsökun “ við spiluðm ekki nægilega góðan sóknarleik “ alltaf sú sama eftir alla tap leiki! Hvernig væri þá bara að æfa þennan sóknarleik betur? Ég meina Zoran lætur okkur fara í skotæfingar ef við hittum ekki á markið í leik, þá bara skotæfingar næstu æfingu ekki flókið HEHEHE.
Jæja úr öðru í annað, ætla biðja ykkur að færa bílana í bílskúrinn afþví ég er kominn í umferðina og ég er rosalegur hehehe! Tók nokkrar skrallibeygjur í hringtorginu í Garðinum.. Jájájá vorum að keppa um helgina á Íslandsmóti innanhús og gekk bara fjandi vel þar og svo næsta sunnudag er hraðmót í Reykjaneshöllinni og endilega mætið til að horfa á. Þetta lífgaði nú eitthvað smá upp á þetta helvíti, kemur hörku blogg næst skal lofa því!


 

.:Gauti:.

» 17 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 01:08:17 / Sigurbergur

Afmæli!!

Hann Róbert okkar er orðinn svííít

16 ! meeetnaður róbert,

Við strákarnir óskum þér gleðilegs

æfmælis ;D mahah;**** Og ekki

má gleyma tvíburasystirinni henni

Önnu Helgu þú líka gleðilegt afmæli;***

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 12:29:58 / Sigurbergur

Jólíjól

Við strákarnir viljum óska öllum
 
 
landsmönnum gleðilegra jóla og þökk fyrir
 
 
viðskiptin á því ári sem senn er að líða.
 
 
Gleðileg jól 
 
 
/loverboys-
 
 

» 13 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 22:09:44 / Robert

Jólablogg Gandálfs

Jæja, Fyrst og fremst afsakið bloggleysiblabla. En vegna mikils "ekkert að gera." tefst maður í leti

og sleni. Sem oftar en ekki orsakast af snjóekkisnjóbleytukulda og ja ég leyfi mér að segja veseni . En

þið skiljið þetta allveg? Fyrst verður maður reiður útaf snjórinn fer( Allveg ah fjandans þar fór íbúðin.)

svo verður maður leiður útaf rigningunni, eitthvað þróannakennt sem hún hefur byggt í sig. Og ekki

nóg með það heldur verður maður þreyttur ofan á hana, vegna rok vælsins og hitans sem maður er

búinn að stilla ofninn á Aafþví að það er svo fjandans kalt úti! Guð hvað ég elska Ísland.

 

En úr því ég er unglingur, samt enginn venjulegur en hef hæfileika venjulegra ungliga LÍKA þá get ég

vakið á kvödin/næturna, og sofið á daginn. Piece of pie....

Og þá finnst mér tilvalið að gera svona Íslenskt jólablogg á óþreyttasta tíma dagsins í kósý heit

lífsins = kvöldstorminumhelvítisnorðanáttin maður og hlýjunni inni.

En að máli málanna. Lengi! hef ég pælt í hinum ýmsu hlutum sem tengjast jólunum og þar má nefna :

Hefðir, Jólasveina, Jólalög, Jólaveislur, jólamat og svo margt meira. En byrjum á þessu.

Jólasveinar : Einn og átta? Eeða hvað. Nú er ég strákur sem er búinn að upplifa það að fá í skóinn. Og kannski maður pæli ekki eins mikið í þessu á yngri árum og núna, jáá. Í fyrstalagi, það er svo mikið sem ekkert samræmi í þessu lengur. Tökum sem dæmi: Jólalög þar er oftar en ekki tekið útlensk lög og breytt þeim, bara svona eins og Íslendingum sæmir. Og þar koma fyrir skemmandi staðreyndir um hinn alls ekki íslenska jólasvein. Er jólasveinninn á sleða á íslandi? Neiiiiii Kemur jólasveinninn niður strompa?? Jaa nú veit ég ekki? Mér finnst að það ætti að ritskoða öll lög og samræma þau íslenskri jólasveina menningu. Þetta er allt að fara vitleysu bara. Og ekki nóg með það, heldur hefur fyrirtækið sem sér um þjóðardrykk Íslendinga sem er auðvitað Kókómjólkin! ( og ég vill ekki heyra múkk fá ykkur með mjólkuróþol, getið sjálfum ykkur um kennt.) Tekið uppá því að troða gömlum jólasveinum á fernurnar? Hvað á að ljúga að krökkonum. Jáá sko þeir dóu allir sjötíu þegar loftsteinninn lenti á jörðinni? JA eða hvað? Kannski eru þeir lifandi og þá byrja jólasveinarnir að koma í Ágúst. Hvernig lýst ykkur á þá staðreynd? En svona er þetta eins og með margt annað. Fólk þarf að halda svona leyni fund svo það sé á sömu blaðsíðu.

 

Og svo er það annað eins og ég nefndi áðan Jólalög: Allt meira og minna stolið. Við erum nú söngþjóð? Birgitta Haukdal, Rúnni Júll, Viktor Gísla. Megas teljum við ekki með hann yrði mistúlkaður við Gjörning á hryðjuverkum. En hvað er málið? Ég er bara búinn að heyra sömu jólalögin 15 ár í röð. Að vísu komu Í svötum fötum með slagara, Á móti sól. En hvað er það gamalt? Allavega nógu gamallt svo að maður fái allveg nóg þegar sami diskurinn og frá árinu 2000 er að byrja aftur í tólfta skiptið. Það er svona smáá spurning hvort að það sé ekki hægt að koma með smáá nýtt svona svo maður endi ekki á því að spila Ac/Dc til að losna við ógeðið á sömu lögunum.

 

Jólaveislur: Ég veit um fátt skemmtilegra en að mæta í fullt af veislum og fá að borða ennþá meira og tala nú ekki um að heyra fleygar setningar á borð við : „Roosalega hefurðu stækkað drengur.“ „Þú ert allveg eins og pabbi þinn!“ og „ Alltaf í boltanum?“ Þetta er það sem ég bíð eftir allt árið og um þetta snúast jólin, Bara viðurkennið það.

 

En því miður eftir Jólahátíðinar kemur Gamlársdagur/ nýjár. Og þótt maður sé orðinn allveg bilað fullorðinn og ætlar ekkert að kaupa rakettur......hvern er maður að plata? Allir strákar voru/eru/eða munu verða brennuvargar. Þetta er staðreynd eftir 9 ára rannsókn á vinum og reynslu á misstórum brennum. Alltaf gaman að þessu nema í þau fáu skipti sem maður brennir sig og fær svona lítið gult sár og svíður allveg geeeðveikt en vill samt ekki segja útaf maður er búinn að segja við mömmu að maður meiðir sig alldrei á þessu. Úff. En að vísu væri ég allveg til í að fá þessa hundraðþúsund kalla aftur EH. Og þó þá sér maður einhvernveginn alldrei eftir þessu, jeminn.

 

Og úrþví ég er unglingur þá er mér rosalega heitt og má ekkert vera að þessu. Er farinn að hlusta á muse, borða súkkulaðistykki tússa broskalla og flokka downloadið. En þangað til næst, sem verður guð veit hvenar. Þá bara hérna

 

 

 

Bllaaaaaasshaarrr:*

Róbert.


» 15 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 15:53:33 / Sigurbergur

Jólafýlingur ?

Nú jæja Það er bara svona .. annað bloggið í röð ? hmmmm

Ég ætla nú bara að segja svona nokkur oggu ponsu orð um það sem er að gerast í því daglega lífi sem skeitingurinn er að dutla við þessa daganna. Fyrst ber að nefna að það er ekkert að gerast á þessari síðu. Svo er jú að höllin er lokuð een við grátum ekki sverð í bót og æfum á hinum skelfilega leikvangi sem Myllubakkaskóli hýsir. Alveg skelfilegur gervigrasvöllur þar á ferð og ég lýsi nú yfir kvörtun minni á þeim velli hér og nú. Það er verið að leggja nýtt gras á höllina sem á að vera til hins betr Júú, helgin hjá hinum þolmóða mér er ekki á verri endanum, neii oneii, ætli maður skelli sér ekki í Fjörheima á föstud þar sem Gunnar nokkur Örn nokkur Arnarsson A.K.A ; Sundhetta muun leika alveg frábært hlutverk sem jólasveinn, hver veit nema að hann taki sundhettuna og sundgleraugun með ? :D hah.. En júú svo eru u17 landsliðsæfingar um helgina líka og það er nú ekki slæmt, 3 loverboysar þar! árni og róbert fá að vera með líka. Svoo er að the main event sko ! Á sunnudagskvöldið fer hin þolmóði ég á jólatónleika með Bjögga Halldórs ! Top that Guðrún Ólöf (Y) hahah, mamma fær að fljóta með og hver veit nema jólasveinninn kíki ? een svo verður voða fátt meira kannski maður fléttir sér til Gunnars eða eitthvað, Gunnar ? Game eða :)

Svo vil ég líka minnast á eitt; Ég samhryggist Hrafnhildi&Auði og fjölskyldu þeirra og einnig votta ég samúð mína til Tönju og fjölskyldu hennar, ;(

En ég ætla að henda mér burt.. Veriði blööööössssss
- Sigurbergur hin (ó;)þolinmóði


» 24 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 16:39:44 / Sigurbergur

Pomps og bumbs

Bleeeeeheeelller, sæl.. Vá!, Það vantar eitthvað inná þessa síðu hérna hjá okkur sko,, blogg? hver veit? ekki ég, þú ? hmmm, Jú svona blogg byrja voða eins hjá manni en jææja! Samssssssuð búið var fínt svosem... Jújú segja það ? skulum orða það bara gaman! Gerðum sittlíitið af hverju eins og flestir vita.. fyrsta nóttin var hræðileg skal rétt til orða tekið fram, Guð minn almáttugur;O svaðalegt alveg! sofnaði eiginlega fyrstur eeen svo vaknaði maður svona hálftíma seinna við hlátur í Friggu,, sössösssöösss þetta var alveg ranglátlega bjátulegt sko, svooo sofnaði Elissoninn ekkert aftur nema í svona 1 klst i viðbot og svo var æfing daginn eftir.. vesen sko, ójá vesen

Próóófin búin í bili, feginn ? Ójá ! þurfti að taka 5 próf á fimmtudaginn! Já þið sáuð rétt ! lesið bara aftur ef þið trúið þessu ekki ;) 5 próf takk fyrir og núggat..Ég ætla ekkert að afsaka mig en ég skeit í mig stærðfræðiprófið bókstaflega og þegar ég opna einkunarblaðið býst ég við 3,5! Hlakka ekki beint til þess dags en júú svo gekk manni bara nokk vel í hinum sko;) Frí á fimmtud og svona :D

Svoooo er það aðalmálið í dag !! Torrent maður,, obbobbobb sjúddirallýrei það er víst buið að loka því, það er jú nokkuð svekkjandi en jú, lífið heldur áfram sinum vanagangi og við verðum að lifa í sátt og samlindi yfir því öllu saman, ég bara æjii veit ekki sko.. Ætla að slíta þessu stutta bloggi hér, Hef ekkert að segja og eins og ég sagði, það vantaði eitthvað hér inn og því fór ég og klessti einu eins aura bloggi hér inn ;D

Veriði heil og sæl

- Sigurbergur sem er að borða svartan Opal !

» 27 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 23:12:54 / Robert

með rifgötum.

Hæ.
Sími batterýslaus. Ekki svo gott.

Vogar Ball

Ææææææææææfing.                      Með bolta að vísu.

Sofa mínus sofa deilt með sofa samasem þreyta. Eflaust.                                    Undantekningalaust Skóli. 

                                             Missa nögl.                              Frábært.            

 

Hvenar?        Það man ég ekki.                                                             Yfir og út.

 

Hvar eru allir?                                     Viktor, heima hjá þér?

 

Bráðabyrgðarblogg þar til ég finn út hvar hinn sokkurinn minn er? Sem verður væntanlega eftirmiðdegis á morgun.

Þangað til þá .....

....Fjandinn!

 

                                                                                                                                                                            RóbertEh


» 19 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 16:49:35 / Gauti

sææææll

Jújú fólk mitt fyrsta blogg hér og ætla ég að þakka strákunum fyrir boðið á þessa síðu, takk kærlega sykurpúðar;*.. En ætti ég ekki að koma með smá blogg frá því hvað hefur gerst undanfarið;D.. Jújú margt hefur gerst, fótboltinn byrjaður aftur og hver kannast ekki við þetta “ svifryksmál” ? Jú ég hef þurft að fara til lungnasérfræðings útaf þessu og væntanlega þarf ég að fara í margar rannsóknir útaf þessu! Njaa ekki alveg, ég finn ekki fyrir þessu og hef ekki gert það síðustu ár sem ég hef verið þarna inni þannig ég ætla ekki að vera röfla yfir “ svifryki”!!! Jújú svo var para&vina ballið fyrir akkurat viku síðan eða “ vina¶” ballið, það er víst búið að breita þessu útaf því að foreldrum finnst “ para&vina” vera þrýsta undir að krakkar eigni sér kærustu á svona ungum aldri?? Haha hversu fáránlegt! Alla vega gat ég hlegið af því þegar kennarinn okkar fór að röfla útaf þessu. J Jú og var þetta alveg meeeega stuð skal ég segja ykkur, alla vega fór ég sveittur og sáttur af þessu balli og held að flest allir hafi gert það, nema einn strákur sem ég veit um, hann var farinn eftir smá tíma afþví honum fannst Páll Óskar svo hommalegur? Oooog? Palli beibí er bestur!:D Stanslaust stuð með Palla beibí... Svo er bara planið að kige i Keflavik i aften jaa, spá í að kíkja til Árna, Árni til á körfuboltaleik í kvöld? Alla vega er ég game! Alltaf svo mikill hasar á körfuboltaleikjum.. Svo er það Ólafur umboðsmaður Sólarinnar, “ jáá fínt já sæll, já fínt já sæll já fínt já sæll” jújú ef þið vissuð rétt þá kem ég frá Sandgerði og er einmitt í Sólinni, þekki Ólaf geðveikt vel! Ef þið viljið ná sambandi við hann getiði beðið mig um númerð hans er með það hérna hjá mér:D Hann kom á Gullnu Röddina hérna í Sandgerði, ég tók einmitt lagið hérna Pretty Woman djöfull var það svalt, hann vildi fá mig til að hita upp fyrir sólina á Broadway..En held að þetta sé bara fínt í bili svo ég kveð bara.
                        
.:Gauti:.                   

   Ætla setja þetta myndband hér, ég hreinlega vorkenni þessari stelpu rosalegt að sjá! www.b2.is/?sida=tengill&id=260097


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:07:25 / Davið

Blogg frá mér ég líg ekki !!

Rétt upp hendi sem segir að það sé kominn vetur eða það geri ég þokkalega! Vont veður, snjór allir verða voða happy  eithvað og svo kemur rignig og rok og snjórinn verður að slabbi ekki gott og einginn ánægður. En óhöpin hrundu allveg yfir í njarðvíkubrekku í þessum litla snjó en ekki munaði miklu að eithver hefði  Dáið þar en sumum tókst að komast nær því en aðrir með því að viðbeinsbrotna, kjálkabrotna, rispa allt anlitið sitt og svo voru eithverjir sem fengu bara kúlur á hausinn.

En pæling ? Akkuru koma aldrei neinar stóra hljómsveitir hingað að spila ? Ok nokkrar hafa komið eins og Coldplay, Foo Fighters, Queens of the Stone Age, Franz Fredinand og Block party. En hví vill engin hjómsveit á við Angels & Airwaves, Sum 41, +44 og Red Hot Chili Peppers spila hér ? myndi maður ekki slá til í eina sona hér á Íslandi jú ég held það. Ég meyna ég er soldið svektur því ekki nennir maður að mæta endalaust að mæta á Sky Reports í fjörheimum? Þótt ekki alls fyrir tóku þeir sig til og slógu í gegn með smellinum “Ofboðslega Frægur “

Já það má ekki gleyma Para og Vina sem er ný búið en held að allir hafi haft gott af því að mæta og dansa brálæðislega.Palli sló í gegn eins og alltaf sumir fengu meira að segja koss frá keps.En úr einu máli í annað “Reykjaneshöllina”. Þar mun vera ein versta ligt sem ég hef fundið. En hvað á að gera maður er nú oft þarna og þá eru alltaf eithverjir sem koma og kvarta en hvað á starfsfólkið að gera það er verið að fara að skipta um gras. Og mér fynst óþolimæðin vera að drepa suma með því að geta bara ekki biðið í 1 mánuð eða 2 í mestalagi? ótrúlegt

 

En ja kveð að sinni þetta varð miklu meira en það átti að vera og munið að vera góð við allt og alla þá gengur allt svo miklu betur …

 

 

-Árni Feiti


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 17:04:32 / Robert

:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:******************************

GETIÐI BARA HVAÐ!?

 

 

Loverboys er 

 

EINS ÁRS!!!!!!!!!

The image “http://www.arsepoetica.com/blog/images/birthday.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


» 22 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 22:42:41 / Robert

lOL

Hææmms. Éévaknaði í morgun og eikka fekk mér að borða, var samt ekkert svangur. For svo í skólann þar voru allir eikkað þússt vó gleimt að tanbursta sig eða eikka ég bara Hey take the tjill pill.! Svo fór jeg í íþrottir og eikka var í fóbó bara að sparka bolta eða eikka þússt svo bara for ég á æfingu og er eikk að spá í að fara bara að læra or sum. En elskunar viljiðikommenta?<3<3<3<3

 

Kunnulegt? Grátlegt? Eða jafnvel Fáránlegt. Fyrir minn smekk. GUÐ MINN GÓÐUR! Það skal ENGIN lifandi manneskja segja mér það að honum sé eitthvað sama um hvað fólk sé að gera á daginn? Viskan geiiiislar allveg af svona bloggum. Og júú ég hef verið að skoða þetta núna undanfarið og þetta eru ekki bara stelpur sem eru svona. Heldur hef ég nú séð nokkuð til öfugleikans á vappi.  En spyrjið ykkur? Vill fólk vita hvað ég gerði í dag? Því júú þá er það fínn kostur að bara logga sig inná msn og bara spyrja. Hvað gerðir þú í dag vinkona?. Þetta er ekki allveg allt í góðu? Og þó! Ef þið kjósið að gera þetta og þið takið þetta til ykkar sem við á.  Í guðanna bænum viljiði skrifa þetta svo að fólk sem talar hina gerðina af Íslensku skilji þetta? Það bara hlýtur að vera einhver þarna sem er sammála mér?

En bara pirringur í mér.. og úr því ég er byrjaður og auðvitað er það ekkert eitthvað eitt sem fer í mínar taugar. Þá langar mig til að koma að einu. Slagur? Hvað varð um Einvígi og Hólmgöngur.  JÚ! Oftar en ekki eru sleðar þarna úti sem útaf einhverjum ástæðum(oftast engum) þurfa að „hamra einhvern í kessu“  OG JÚ! Gera þeir það sjálfir? Nei ég held nú síður, auðvitað er annaðhvort hringt í Jóhann Handrukkara EÐA alla þá fimmtán í símaskránni og sagt þeim að mæta með riffil ellegar hníf. Því  jú við vitum öll að þá passar sá aðilli ekki inní crew-ið. Og svo er tekið einhvern einn fyrir. Hugrekkið allveg svoleiðis skín í gegn!  En ég segji bara því ekki að reyna að minsta kosti að fá á sig smá svona hetju orðróm og mæta EINN á móti þeim aðilla sem þarf svona virkilega að lumskra á og gá þar hvor endar sem meiri auminginn?

Þetta er samt bara heimurinn í dag. Kolklikkaður að vana og asnalegur.

En úr því ég er búinn að létta þessu fargi af mér, þá ætla ég að fara að læra um kjarafjölskyldur og sakhæfi.

Þangað til næst.  Bless

-Róbert........niggerpís


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 82429
RSS tengill